20.04.1970
Neðri deild: 78. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1683 í B-deild Alþingistíðinda. (2134)

Aðgerðir námsmanna í sendiráði Íslands í Stokkhólmi

Vilhjálmur Hjálmarsson:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Ég hygg nú, að við séum allir sammála um það hér innan þessara veggja, að þeir atburðir, sem gerzt hafi í Stokkhólmi, séu ekki æskilegir. En það út af fyrir sig þarf engum að koma á óvart, þó að ókyrrð verði meðal íslenzkra námsmanna erlendis í einhverri mynd, kjörin eru orðin þannig. Mér a. m. k. kemur það út af fyrir sig ekki á óvart, þó að eins og ég segi, ég viðurkenni það fyllilega, að slíkir atburðir eru ekki æskilegir. Ég hef fyrir nokkru ásamt hv. 1. þm. Austf., Tómasi Árnasyni, er þá sat á þingi í forföllum Eysteins Jónssonar, flutt till. til þál. um að skora á ríkisstj. að endurskoða lög og reglur um stuðning við íslenzka námsmenn erlendis með þá stefnu í huga að koma á námslaunakerfi, svo fljótt sem við verður komið.

Ég held alveg óhætt að segja, að það sé orðið lýðum ljóst, að þau almennu kjör, sem búin eru íslenzkum námsmönnum við æðri skóla, séu orðin slík, að efnalitlir eða efnalausir nemendur eigi ekki kost á því að njóta æðri menntunar, nema þá aðstandendur geti hlaupið þar undir bagga. Nú er þannig háttað, að lögbundinn, almennur stuðningur er einkum veittur í formi lána að viðbættum ferðastyrkjum. Ekki þekki ég annað af persónulegum viðskiptum við lánasjóð íslenzkra námsmanna. Hann er veittur sem lán að viðbættum ferðastyrk. Og lánin fara lækkandi, eftir því sem menn vinna sér inn tekjur á sumrin. Þetta var ekki svona áður. En þetta þýðir í framkvæmdinni, að dugmiklir og efnalitlir námsmenn, sem sækja sína vinnu af kappi, fá bara brot af þeim lánum, sem hinir fá, sem ekki sækja vinnu, t. d. af því að þeir eiga efnaða foreldra. Ég álít, að það sé ekki fræðilegur möguleiki til þess, að íslenzkur námsmaður erlendis geti að sumrinu unnið það inn, sem vantar til þess, að lánin hrökkvi. Og þá verður það ekki hæfni nemandans, heldur efnahagur aðstandandans, sem ræður því, hvort menn geta stundað þetta nám, því að ég a. m. k. álít það alveg útilokað, að menn geti fleytt sér á víxlum með það, sem þarna vantar upp á.

Nú geta lán, það er satt, þau eru nokkuð há að krónutölu, og þau geta í löngu námi erlendis farið allt upp í 800 þús. kr. En stefnir þetta ekki alveg í vegginn líka? Hvernig er hægt að hugsa sér það, að ungt fólk, með því almenna launakerfi, sem er í þessu landi, geti staðið undir allt að 800 þús. kr. lánum, samhliða því sem það er að mynda heimili og koma sér upp húsi yfir höfuðið. Ég held, að þetta sé alveg komið í mát. Með þessum orðum er ég ekki endilega að deila á einn eða annan. En við skulum bara gera okkur grein fyrir því, að þetta er svona.

Ráðh. fór með nokkrar tölur, sem hann taldi sönnun um það, að fjárveitingar til þessara mála á fjárl. hefðu farið vaxandi. En þrátt fyrir það leyfi ég mér að fullyrða, að ástandið hefur versnað hjá erlendum námsmönnum, og ég tala þar af nokkurri reynslu. Þetta er skiljanlegt, ef við aðeins lítum á það, sem gerzt hefur á síðustu árum: Í fyrsta lagi gengisbreytingarnar, í öðru lagi miklu, miklu þrengri vinnumarkaður á sumrin, í þriðja lagi skerðing lánanna vegna tekna, sem ég hygg að sé nýtt ákvæði, og svo í fjórða lagi afnám almennu styrkjanna. En fyrir nokkrum árum var það svo, að á síðari hluta námstímans var meiri hluti hins almenna stuðnings veittur sem styrkur, en ekki lán, eins og nú er. Og þegar maður lítur bara á þetta, þá er það engin furða, þó að hagur námsmanna hafi raunverulega versnað þrátt fyrir hærri framlög á fjárlögum í íslenzkum krónum talið.

Hæstv. ráðh. sagði svo að síðustu um þetta, að raungildi lána og styrkja hefði farið vaxandi á þessum árum. Það er ekki til nokkurs skapaðs hlutar, hvorki fyrir hæstv. ráðh. né nokkurn lifandi mann annan, að segja þetta. Íslenzkir námsmenn erlendis, svo að við höldum okkur nú bara við þann þátt, þeir vita ósköp vel, að þetta er ekki svona, og þeir, sem hafa unnið að því að greiða fyrir íslenzkum námsmönnum erlendis, vita það líka fullvel, að þetta stenzt ekki. Ég hef að sjálfsögðu ekki hér á þessari stundu í höndum tölur um þetta efni, enda yrði allt of langt mál að fara að rekja það hér lið fyrir lið utan dagskrár, en þetta stenzt engan veginn.