26.01.1970
Neðri deild: 43. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 255 í B-deild Alþingistíðinda. (221)

123. mál, tollskrá o.fl.

Vilhjálmur Hjálmarsson:

Herra forseti. Vegna þess að mér virtist mega misskilja ummæli hæstv. ráðh., þá vil ég vekja athygli hv. þdm. á því, að jarðýtur eru alveg sérstakt tollskrárnr., nr. 84.23.02. Þess vegna er því hægt að taka þær út úr hópi af öðrum slíkum vinnuvélum. Hitt er svo annað mál, og það er auðvitað matsatriði, hvernig hæstv. ráðh. og aðrir hv. þdm. líta á það, hvort það sé efnislega réttmætt að gera það. En formsins vegna, vegna þess að þær eru alveg sérstakt tollskrárnr., þá væri það hægt.