21.01.1970
Sameinað þing: 31. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 256 í D-deild Alþingistíðinda. (3009)

32. mál, löggjöf um þjóðaratkvæði

Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Þessi till. hefur verið til meðferðar í allshn. Sþ. N. leitaði umsagnar hjá hæstarétti og hjá Háskóla Íslands, lagadeild. Álit þessara aðila eru prentuð hér með nál. sem fskj.

Hæstiréttur mælir eindregið með samþykkt till. í örfáum orðum. Háskóli Íslands, lagadeildin, gerir nokkru nánari grein fyrir sinni afstöðu, bendir m.a. á það, að enda þótt endurskoðun stjórnarskrár í heild sé umfangsmikið mál, þá séu þar ýmis einstök atriði, sem geti vel komið til greina að taka til sérstakrar íhugunar, eins og segir í þeirri umsögn, svo sem það að finna leiðir til að auka þátttöku kjósenda í töku ákvarðana í einstökum málum; ef þess er kostur. Háskólinn mælir einnig eindregið með samþykkt tillögunnar.

Það hefur orðið niðurstaða allshn., eftir að hafa rætt till. á nokkrum fundum og farið yfir þessar umsagnir, að mæla með því, að till. verði samþ. Þó er lagt til, að tillgr. verði breytt að orðalagi, en efnislega er þar nánast ekki um breytingu að ræða. Till. n. um breytingu er á þskj. 321. Það er umorðun, og ég þarf ekki að eyða tíma í að lesa hana. En ég get aðeins skýrt frá því þó, að breytingin er í því fólgin, að ríkisstj. er falið að framkvæma þetta verk, í stað þess að Alþ. kjósi til þess 5 manna nefnd.

Það var einróma álit n. að mæla með samþykkt till. með þessum formsbreytingum.