01.03.1971
Neðri deild: 54. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 21 í D-deild Alþingistíðinda. (3368)

50. mál, hitun húsa með raforku

Jónas Pétursson:

Herra forseti. Ég vil nú fyrir hönd okkar flm. þakka hv. n. fyrir afgreiðslu á þessari till., en ég vil þó jafnframt láta í ljós þá skoðun mína a.m.k., að að því leyti sem till. hefur verið breytt, þá tel ég, að ekki hafi það verið til bóta. Það hefur sem sé verið fellt niður úr till. að gera 5 ára áætlun, og í staðinn er það aðeins að gera áætlun og ótímabundið. Þetta finnst mér heldur veikja málið, hefði þá fellt mig betur við, að tíminn hefði eitthvað verið lengdur. Ég vænti þess, að menn átti sig á því, hvað ég á við með þessu. Það er eins og meiri festa í þeim ályktunum, þar sem tímatakmörk eru sett. Þetta vildi ég aðeins láta koma hérna fram. Hins vegar er ég samþykkur till., eins og n. gengur frá henni.