02.04.1971
Sameinað þing: 40. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 93 í D-deild Alþingistíðinda. (3544)
129. mál, útflutningur á framleiðluvörum gróðurhúsa
Frsm. (Jónas Pétursson):
Herra forseti. Þessi þáltill. á þskj. 151 um rannsókn á möguleikum á útflutningi á framleiðsluvörum gróðurhúsa hefur verið athuguð í hv. allshn. og send til umsagnar, og niðurstaðan af þeim athugunum er, eins og fram kemur í nál. á þskj. 541, að n. leggur einróma til, að till. verði samþ.