10.05.1972
Neðri deild: 74. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1687 í B-deild Alþingistíðinda. (1553)
217. mál, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):
Herra forseti. Fjhn. hefur athugað þetta frv., leitað umsagna hjá stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og Tryggingastofnunar ríkisins og átt viðtöl við tryggingafræðing um efni þess, en það hefur áður verið kynnt fyrir hv. d. Þá bárust n. tilmæli frá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja um að bæta inn í frv. nokkrum ákvæðum.
Í fyrsta lagi, að starfsmenn aðildarfélaga bandalagsins öðlist sama rétt og starfsmenn bandalagsins sjálfs. Í öðru lagi, að tekin verði inn í frv. ákvæði, er fela í sér lagfæringu á kjörum maka látinna starfsmanna þeirra, er lög þessi ná til. N. leggur til, að orðið verði við þessum tilmælum. og felst það í þeim brtt., sem lagðar eru fram hér með nál. á þskj. 735.
Enn eru svo tilmæli frá bandalaginu um að veita lausráðnum starfsmönnum ríkis og annarra, sem þessi lög ná til, lífeyrisréttindi. Þetta er talið allmikið mál umfangs og n. taldi skorta tryggingafræðilegar upplýsingar, til þess að hægt væri að taka á þessu máli nú og mælir því ekki með því, að orðið verði við þessum tilmælum og ákvæði, er gerðu þetta mögulegt, tekin inn í frv. Fjmrh. hefur hins vegar tjáð mér, að hann muni beita sér fyrir því, að þetta mál verði tekið til meðferðar og nánari athugunar á milli þinga. Fjhn. leggur til að frv. verði samþ. með þeim breytingum, sem prentaðar eru með nál. á þskj. 735.