17.12.1971
Neðri deild: 29. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 466 í B-deild Alþingistíðinda. (402)
119. mál, verðlagsmál
Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):
Herra forseti. Fjhn. hefur fjallað um þetta mál. Eins og fram kemur á þskj. 190, þá mælir n. með því, að frv. verði samþ. Þrír nm., Gylfi Þ. Gíslason, Matthías Bjarnason og Matthías Á. Mathiesen, taka það fram, að þeir mæli með samþykkt frv. í því traustu, að viðskrh. skipi embættismann sem formann verðlagsnefndar. Og tveir nm., Matthías Bjarnason og Matthías Á. Mathiesen, áskilja sér rétt til að flytja eða fylgja brtt., er fram kunna að koma.
Það liggur fyrir ein brtt. við þetta frv. frá einstökum þm., um breytingu á skipan verðlagsnefndar. Nefndarskipanin vat í upphafi ákveðin með samkomulagi við ýmsa aðila, og aðrir nm. en þeir tveir, sem áskildu sér rétt til að flytja eða fylgja brtt., treysta sér ekki til að mæla með samþykkt þeirrar brtt. og raska þar með því samkomulagi, sem gert var á sínum tíma.
Nú er þess að geta, að eftir að gengið hafði verið frá nál., bárust n. tilmæli frá hæstv. ríkisstj. um, að bætt yrði við þetta frv. ákvæði til bráðabirgða, sbr. þskj. 226.
Fjhn. varð ásátt um að verða við þessari beiðni og hefur lagt fram brtt. á þskj., sem ég áðan nefndi. En rökstuðningur fyrir þessari beiðni ríkisstj. var á þessa leið:
„Þar sem lög nr. 94 frá 19. nóv. 1970, um ráðstafanir til stöðugs verðlags og atvinnuöryggis, falla úr gildi 31. des. n.k., er talið nauðsynlegt, að meginatriði þeirra laga um meðferð verðlagsmála haldi gildi sínu út árið 1972, svo að hægt sé að fylgjast með og hafa hemil á verðhækkunum, svo sem frekast er kostur. Er í ofangreindum till. lagt til, að þessi ákvæði í verðstöðvunarlögunum verði látin gilda til ársloka 1972.“
Þetta voru skýringar frá hæstv. ríkisstj. á þeim ákvæðum til bráðabirgða, sem hv. fjhn. hefur tekið upp sem sína till. og liggja hér fyrir á þskj. 226.
En fjhn. leggur sem sagt til, að frv. verði samþ. og þá með þessari breytingu.