08.02.1972
Sameinað þing: 35. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1187 í D-deild Alþingistíðinda. (4893)

155. mál, fjármagn til Landnáms ríkisins

Vilhjálmur Hjálmarsson:

Herra forseti. Mér er nú í sjálfu sér illa við að blanda mér inn í fsp„ sem ég ber ekki fram sjálfur, og ég tel, að það eigi þm. yfirleitt ekki að gera. En mér finnst nauðsynlegt, þegar þessi mál ber hér á góma, að tengja þessar umr. við það, sem gerðist hér á Alþ. fyrir fáum árum síðan, ég ætla fyrir þremur árum. Þá stóð Landnám ríkisins á þeim tímamótum, að gömlu verkefnin voru að fjara út, uppbygging nýbýla í því formi, sem Landnáminu var fyrst og fremst ætlað að vinna að. Við blöstu ný verkefni á mörgum svíðum. Þá var slegizt um það hér, umr. eftir umr., hvort ætti heldur að gera, að snúa sér að þessum nýju verkefnum eða skera niður framlag til Landnáms ríkisins í sparnaðarskyni. Það er rétt að minna á þetta hér, þegar verið er að ræða um þessi mál. Ég skal ekki hafa þessi orð fleiri, en get þó látið það fylgja með, að þá voru a.m.k. ekki svör ráðamanna neitt óljós, því að þau voru alveg skýr og ákveðin: Það skyldi ekki hafizt handa um að snúast við nýjum verkefnum, heldur tekin upp sú stefna að skera niður framlag til Landnámsins um nokkrar millj. kr., og það varð svo að vera og var gert í tvö ár, að mig minnir.