20.12.1972
Neðri deild: 33. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1581 í B-deild Alþingistíðinda. (1166)

15. mál, bann gegn veiðum með botnvörpu og flotvörpu

Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Það gefur auðvitað auga leið, að það er ekki hægt að gefa fyrir fram neina skilgreiningu á því, hvað maður telur sæmilegt samkomulag. Þó hygg ég, að það liggi ljóst fyrir, að ef málið er þannig, að útgerðarmenn og sjómenn í Vestmannaeyjum eru almennt þessu fylgjandi, þá þarf að koma mjög sterk andstaða í Grindavík t.d., sem er álíka stór verstöð, til þess að þetta yrði ekki gert. En ég vil segja það, að hér er ekki um að ræða að breyta landhelgisreglugerðinni, heldur að gefa út fyrirmæli um að loka þessu tiltekna svæði á þessum tíma.

Ég vænti nú þess, eftir því sem hér hefur komið fram hjá hv. þm., að hann sætti sig við það, sem ég hér hef sagt, því að það er fyllilega mín skoðun, að það eigi að vinna að því að loka þessu svæði fyrir netaveiðum. Ég er honum sammála um, að það beri að gera. En það var ætlunin, að þetta fylgdi öðrum slíkum ákvörðunum annars staðar. En ég mun nú ganga eftir því, hvort ekki er hægt að framkvæma þetta fyrir næstu vetrarvertíð.