25.01.1973
Sameinað þing: 34. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1728 í B-deild Alþingistíðinda. (1329)

Varamenn taka þingsæti

Forseti (EystJ):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 23. jan. 1973.

Formaður þingflokks Framsfl. hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Samkvæmt beiðni Einars Ágústssonar utanrrh., sem nú dvelst erlendis í opinberum erindum, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþ. að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Reykjavík, Tómas Karlsson ritstjóri, taki sæti á Alþ. í fjarveru hans.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Eggert G. Þorsteinsson,

forseti Ed.“

Tómas Karlsson ritstjóri hefur setið áður á þingi á þessu kjörtímabili, og býð ég hann velkominn til starfs.

Þá hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 24. jan. 1973.

Jónas Jónsson, 1. varaþm. Norðurl. e., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Vegna sérstakra anna næsta hálfan mánuð og nokkurra ferðalaga, sem ég þarf að takast á hendur, fer ég þess á leit, að 2. varamaður Framsfl. í Norðurl. e. taki sæti Gísla Guðmundssonar, sem hefur tjáð mér, að hann verði enn um sinn frá þingstörfum vegna veikinda“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Gils Guðmundsson,

forseti Nd.“

Ingi Tryggvason hefur áður setið á þingi á þessu kjörtímabili, og býð ég hann velkominn til þingstarfa.

Þá hefur loks borizt svo hljóðandi bréf: „Reykjavík, 23. jan. 1973.

Ragnar Arnalds, 4. þm. Norðurl. v., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Norðurl. v., Hannes Baldvinsson síldarmatsmaður, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Eggert G. Þorsteinsson, forseti Ed.“

Eins og fram kemur í bréfinu, hefur Hannes Baldvinsson ekki setið þingbekk áður og því ekki setið á þingi á þessu kjörtímabili. Ber því að láta fara fram athugun á kjörbréfi hans, og bið ég hv. kjörbréfanefnd að taka það að sér og gef til þess 7 mínútna fundarhlé. — [Fundarhlé.]