26.10.1972
Sameinað þing: 8. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 365 í B-deild Alþingistíðinda. (147)

Umræður utand dagskrár

Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Ég skal svara fyrir mitt leyti þessum sérkennilegu fsp., sem hér eru bornar fram. Spurt var um það,. hvort ummæli þau, sem hæstv. forsrh. hafi látið falla í umr. hér á Alþ., væru frásögn af viðræðum í ríkisstj. Ég átti að vísu ekki kost á því að hlýða á hæstv. forsrh., en hef heyrt lauslega fréttir af því, hvað sagt hafi verið, og ég svara því hiklaust til, að hér er ekki um neina frásögn að ræða af viðræðum á ríkisstjórnarfundum.

Þá er spurt, hvort það, sem forsrh. sagði, beri vott um ágreining í ríkisstj. Því svara ég neitandi, algerlega neitandi. Ég sé ekkert samhengi þar á milli. Það, sem hér er um að ræða, er, að hæstv. forsrh. tók fram, skv. því, sem frá hefur verið skýrt, að það væri persónulegt álit hans, að grípa þyrfti til tiltekinna ráðstafana í efnahagsmálum, eins og þeirra að stöðva verðlagshækkanir á næsta ári að mestu leyti. Fleira kom þar fram, og var ekkert við því að segja, þá að hann hagaði orðum sínum á þessa lund. Það liggur hins vegar alveg skýrt fyrir samkv. yfirlýsingum hæstv. forsrh., að ríkisstj. hefur ekki enn tekið endanlega ákvörðun um það, hvaða till. hún gerir til lausnar þeim efnahagsvanda, sem við er að glíma. En að sjálfsögðu hafa margvísleg efnahagsleg vandamál verið rædd í ríkisstj. að undanförnu, og eflaust hafa allir ráðh., — eins og ég geri ráð fyrir reyndar flestir þm. líka, — sínar persónulegu skoðanir á ýmsum þeim vandamálum, sem um er að ræða, eða til hvaða ráðstafana komi helzt til greina að grípa.

Ég hef sem sagt, fyrir mitt leyti svarað þeim spurningum, sem var beint til okkar, en sé hins vegar enga minnstu ástæðu til þessara sérkennilegu fsp., sem hér komu fram frá bv. 7. þm. Reykv.