01.03.1973
Neðri deild: 59. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2251 í B-deild Alþingistíðinda. (1764)

169. mál, heilbrigðisþjónusta

Vilhjálmur Hjálmarsson:

Herra forseti. Ég ætlaði mér ekki að ræða þetta frv. nú og skal ekki lengja þessar umr. svo sem neitt. En í framhaldi af upprifjun hv. 5. landsk. þm. á forsögu þessa frv., þegar hann gat þess réttilega, að fyrrv. hæstv. heilbrrh. hefði skipað n. til að undirbúa þetta mál í fyrstunni, þá var aðdragandinn örlítið lengri, og er rétt, að það komi einnig fram. Aðdragandinn var sá, að á nokkrum þingum voru þm. dreifbýlisins búnir að gera harða hríð hér á Alþ. út af þeim vandræðum og erfiðleikum, sem dreifbýlið hefur búið við, og á Alþ. 1969 fluttu 3 þm., þeir Kristján Ingólfsson, Ingvar Gíslason og Helgi Seljan, till. til þál. um endurskoðun á heilbrigðislöggjöfinni og nefndarskipun í því sambandi. Þessi till. var samþ. ofurlítið breytt á Alþ. 28. apríl 1970. Mér fannst þetta vanta framan við annars alveg rétta upprifjun á forsögu þessa máls hjá hv. 5. landsk. þm.

En fyrst ég kvaddi mér hljóðs, vil ég láta í ljós ánægju mína yfir því, að þetta frv. er fram komið. Ég tel, að það sé að heildarstefnu rétt. Það vil ég líka láta koma fram hér, að ég tel það mjög þakkarvert, hvernig unnið hefur verið að þessu máli með því að gera, ég vil segja, allt, sem unnt hefur verið, til þess að kynna málið vítt um land og gefa samtökum ýmsum, og alveg sérstaklega landshlutasamtökunum, sem eru ný í stjórnkerfinu, sem allra bezt tækifæri til þessa að fjalla um málið og koma sínum sjónarmiðum á framfæri. En þrátt fyrir allan þennan undirbúning blandast auðvitað engum hugur um það, að vandi Alþ. við afgreiðslu þessa máls verður mikill, því að málið er í senn margþætt og ákaflega viðkvæmt.