06.03.1973
Sameinað þing: 54. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2330 í B-deild Alþingistíðinda. (1797)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (EystJ) :
Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:
„Reykjavík, 5. marz 1973.
Páll Þorsteinsson, 3. þm. Austf., hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég vegna sérstakra anna heima fyrir mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþ. að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Austf., Tómas Arnason hrl., taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.
Björn Jónsson,
forseti Ed:
Tómas Árnason hefur áður setið þingbekk á þessu kjörtímabili og býð ég hann velkomin til starfa.