13.03.1973
Sameinað þing: 57. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2496 í B-deild Alþingistíðinda. (1899)
295. mál, afhending skuttogara fyrir Útgerðarfélag Akureyringa
Fyrirspyrjandi (Lárus Jónsson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að beina til hæstv. fjmrh. þeirri fsp., sem er á þskj. 335 um afhendingu skuttogara til Útgerðarfélags Akureyringa, en hún hljóðar svo:
„Er það rétt, sem komið hefur fram í fjölmiðlum, að skipasmíðastöðvar á Spáni muni ekki afhenda togara, sem ætlaðir voru Útgerðarfélagi Akureyringa? Ef svo er, hvaða ráðstafanir hyggst ríkisstj. gera til þess, að Akureyringar fái hliðstæð skip á viðráðanlegu verði?“
Eins og ég gat um áðan um fyrri fsp., hefur komið fram í fjölmiðlum, að mikil óvissa sé um það, að þessi skip, sem ætluð voru Útgerðarfélagi Akureyringa, verði afhent frá þessari skipasmiðastöð. Í viðbót við það, sem ég sagði þá, var haft eftir hæstv. fjmrh. í Morgunblaðinu 18. febr. s. l., orðrétt:
„Það virðist eins og það líti ekki svo illa út með þá 3 skuttogara, sem eftir eru frá eldri samningum, en um Akureyrartogarana er allt í óvissu.“
Ég vil vænta þess, að hæstv. ráðh. geti upplýst hv. Alþ. og alþjóð um þetta mikilvæga mál. Það gefur auga leið, að togaraútgerð á Akureyri er beinlínis hætt, ef Útgerðarfélag Akureyringa fær ekki ný skip. Skip þess eru öll, að einu undanteknu, orðin mjög gömul, úr sér gengin og erfið í rekstri vegna mikils viðhaldskostnaðar. Hér er því um mál að ræða, sem er mjög alvarlegt fyrir Akureyringa og raunar fyrir togaraútgerð í landinu.