27.03.1973
Sameinað þing: 63. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2822 í B-deild Alþingistíðinda. (2200)

100. mál, réttarstaða tjónaþola vegna skaða af völdum flugumferðar

Oddur Ólafsson:

Herra forseti. Sem 1. flm. þessarar till. langar mig til að þakka allshn. fyrir ágæta afgreiðslu till.

Síðan þessi till. kom inn í þingið, hafa gerzt atburðir úti í löndum, sem sýna okkur fram á, hve gífurlegt tjón getur hlotizt í nágrenni flugvalla, og ég held, að það sé örugglega nauðsynlegt fyrir okkur með tilliti til okkar stærstu flugvalla að fá gagngera rannsókn á því, hvað gera þurfi. Þess vegna þykir mér vænt um þá ákvörðun, sem n. tók.