04.04.1973
Neðri deild: 75. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3053 í B-deild Alþingistíðinda. (2454)
223. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins
Lárus Jónsson:
Herra forseti. Aðeins örstutt. — Ég vildi í sambandi við ræðu hv. 5. þm. Sunnl. taka mjög undir það, sem hann sagði, að ég lít svo á og það er mín skoðun, að það ættu að vera hærri lán á landsbyggðinni til íbúðabygginga heldur en á höfuðborgarsvæðinu. Það er kannske matsatriði, hvaðan þetta fjármagn ætti að koma, hvort það ætti að koma úr byggðasjóði eða hvort það ætti að koma úr hinu almenna húsnæðislánakerfi, en ég held, að þetta sé einmitt eitt atriði, sem þyrfti að kanna í sambandi við það, þegar húsnæðismál landsbyggðarinnar eru tekin sérstaklega á dagskrá, eins og gert er í þessu frv., en um það er ekkert í því.
Ég vil svo undirstrika enn og aftur, að ég held, að það komi fyllilega til álita, að það þurfi að byggja leiguhúsnæði á landsbyggðinni, en meginstefnan eigi að vera sú, að það eigi að auðvelda fólki fram yfir það, sem annars staðar er gert, að eignast þar íbúðir. Og ég er alveg viss um, að við hæstv. félmrh. erum alveg sammála um það.
Svo vil ég aðeins að lokum, af því að hann vék og eins hv. 5. þm. Sunnl. að skiptingu á fjármagni eins og nú er á milli kjördæma, vekja athygli á því, að á þskj. 383, í till. okkar sjálfstæðismanna um auknar ráðstafanir til hagkvæmrar byggðaþróunar, er á þskj. 3 sýnt nákvæmlega, hvernig þessi skipting er á árunum 1971 og 1972. Og til þess að tefja ekki hv. d. nema í góðu hófi skal ég lesa hér upp, hvernig árið 1972 kemur út, og þá les ég upp framlag á hvern íbúa, bæði frá stofnlánadeild landbúnaðarins og frá Húsnæðismálastofnuninni, þ. e. a. s. þessum tveim aðilum, sem aðallega lána fé til íbúðabygginga í landinu. Þannig eru tölurnar 1972: Það eru 5819 kr. í Reykjavík, 6360 í Reykn., 2760 í Vesturl., 2061 í Vestf., Norðurl. v. 3559, Norðurl. e. 4718, Austf. 3570 og Suðurl. 4761 kr. Það er sem sagt þrisvar sinnum minna fjármagn á íbúa, sem fer til íbúðabygginga miðað við íbúa á Vestfjörðum, heldur en þar sem það er hæst, þ. e. a. s. í Reykjaneskjördæmi.