05.04.1973
Neðri deild: 78. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3088 í B-deild Alþingistíðinda. (2547)

198. mál, sveitarstjórnarlög

Flm. (Lárus Jónsson):

Herra forseti. Það var aðeins örstutt aths. út af því, að hæstv. forsrh. misskildi það, sem ég sagði áður í þessum umr., að það hefði aldrei komið fram ágreiningur um stofnun Fjórðungssambands Norðlendinga. Hann taldi, að það hefði komið fram ágreiningur um það, þegar um var að ræða atvinnumálanefnd, sem var sett á laggir fyrir Norðurland.

Þarna var smámisskilningur, Fjórðungssamband Norðlendinga var stofnað, áður en þessar atvinnumálanefndir komu til, eða var endurskipulagt, — það mun hafa verið 1968, sem það var gert. Á hinn bóginn voru atvinnumálanefndir ríkisins settar á stofn 1969. Ég ætlaði aðeins að láta það koma fram, að hér var um smámisskilning að ræða, en ég ætla ekki að lengja þessar umr.