12.04.1973
Sameinað þing: 70. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3427 í B-deild Alþingistíðinda. (2983)

Almennar stjórnmálaumræður

Forseti (EystJ):

Umr. fer þannig fram, að hver þingflokkur fær til umráða hálfa klukkustund. Auk þess fær Bjarni Guðnason, utan flokka, til umráða 15 mínútur. Umferðir verða tvær, 20 mínútur í þeirri fyrri, 10 mínútur í þeirri síðari eða 15 mínútur í hvorri. Röð flokkanna verður þessi: Sjálfstfl., Alþfl., Alþb., SF og Framsfl. Bjarni Guðnason, 3. landsk. þm., talar síðastur í fyrri umferð.

Ræðumenn verða: Fyrir Sjálfstfl. í fyrri umferð 2. þm. Reykv., Geir Hallgrímsson og í síðari umferð 2. þm. Vestf., Matthías Bjarnason. Fyrir Afþfl. í fyrri umferð 8. landsk. þm., Benedikt Gröndal, og í síðari umferð 2. landsk. þm., Pétur Pétursson. Fyrir Alþb. í fyrri umferð 4. landsk. þm., Svava Jakobsdóttir, og 6. landsk. þm., Helgi F. Seljan, og í síðari umferð 5. þm. Sunnl., Garðar Sigurðsson, og 4. þm. Norðurl. v., Ragnar Arnalds. Fyrir SF í fyrri umferð 7. landsk. þm., Karvel Pálmason, og í síðari umferð menntmrh. Magnús Torfi Ólafsson. Fyrir Framsfl. í fyrri umferð utanrrh. Einar Ágústsson og í síðari umferð 1. þm. Vestf., Steingrímur Hermannsson.

Hefst nú umr. og tekur fyrstur til máls hv. 2. þm. Reykv., Geir Hallgrímsson, og talar af hálfu Sjálfstfl.