14.04.1973
Sameinað þing: 72. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3521 í B-deild Alþingistíðinda. (3052)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Eysteinn Jónsson):
Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:
„Reykjavík, 13. apríl 1973.
Steingrímur Hermannsson, 1. þm. Vestf., hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi, og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþ. óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Vestfjarðakjördæmi, Halldór Kristjánsson bóndi, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.
Björn Jónsson, forseti Ed.“
Halldór Kristjánsson hefur setið áður hér á þessu kjörtímabili, og býð ég hann velkominn til starfa.