17.10.1972
Sameinað þing: 3. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 33 í B-deild Alþingistíðinda. (33)
Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana
Forseti (EystJ):
Umræðan skiptist í tvær umferðir þannig, að í fyrri umferð hefur forsrh. til umráða allt að hálfri klukkustund og fulltrúar annarra þingflokka en forsrh. 20 mínútur hver. Í síðari umferð hefur hver þingflokkur 10 mínútur til umráða. Röð flokkanna verður þessi: Framsfl., Sjálfstfl., Alþb., Alþfl., SF. Ræðumenn auk forsrh. verða þessir:
Af hálfu Framsfl. í síðari umferð Einar Ágústsson utanrrh., af hálfu Sjálfstfl. Jóhann Hafstein, 1. þm. Reykv. í fyrri umferð og Jón Árnason, 2. þm. Vesturl., í síðari umferð. Af hálfu Alþb. Lúðvík Jósepsson sjútvrh. í fyrri umferð og Magnús Kjartansson iðnrh. í síðari umferð. Af hálfu Alþfl. Gylfi Þ. Gíslason, 7, þm. Reykv.,
í fyrri umferð og Benedikt Gröndal, 8. landsk. þm., í síðari umferð. Og loks af hálfu SF Hannibal Valdimarsson félmrh. í fyrri umferð og Magnús T. Ólafsson menntmrh. í síðari umferð. Hæstv. forsrh. tekur til máls.