17.04.1973
Sameinað þing: 74. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3744 í B-deild Alþingistíðinda. (3387)

251. mál, bætt aðstaða ferðafólks og verndun ferðamannastaða

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins segja það hér, sem ég hef sagt áður á Alþ. nú fyrir skemmstu, að náttúruverndarráð hefur efnt til samstarfs n. um þessi efni við ferðamálaráð, Heilbrigðiseftirlit ríkisins og Ferðafélag Íslands, og eru til skoðunar 15 staðir, sem sannast að segja allir eru í talsverði hættu af ágangi. Það verður mjög lítið hægt að gera fyrir það fé, sem náttúruverndarráð hefur, því að það er bundið við annað og ekki hægt að ætlast til þess, að það sé notað í þessu skyni beinlínis, nema að mjög litlu leyti. En ætlunin er, að náttúruverndarráð efni í félagi við þessar stofnanir til meiri gæzlu á ýmsum sviðum en áður hefur verið, og e.t.v. verður hægt að verja einhverju fé til endurbóta af öðru tagi. En það snertir líklega ekki þessa staði, sem hv. fyrirspyrjandi bar fyrir brjósti. Það verður líklega að láta annað sitja fyrir. En þarna er líka um samvinnu að ræða við hæstv. samgrh. og rn. hans.