13.11.1972
Neðri deild: 12. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 668 í B-deild Alþingistíðinda. (385)

36. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins

Vilhjálmur Hjálmarsson:

Herra forseti. Ég ætla nú ekki að blanda mér inn í þessar umr. að öðru leyti en því, að ég vil af gefnu tilefni upplýsa eftirfarandi: Þar sem Kaupfélag Héraðsbúa hefur sjálft útsölu mjólkur, þar er mjólk seld öllum í smásölu, einnig til verzlana, en ekki í heildsölu. Þetta gildir um Seyðisfjörð eins og aðra staði. Ég vil jafnframt upplýsa það, að á Seyðisfirði hefur kaupfélagið núna tvær mjólkurútsölur. Þar sem aftur á móti Kaupfélag Héraðsbúa hefur ekki eigin útsölu, en þó er að staðaldri seld mjólk og mjólkurvörur frá mjólkurbúi þess, þar eru þessar vörur seldar á heildsöluverði til dreifingaraðilanna.