14.11.1972
Sameinað þing: 15. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 671 í B-deild Alþingistíðinda. (389)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (EystJ):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 13. nóv. 1972.

Lúðvík Jósepsson, 2. þm. Austf., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég vegna sérstakra anna mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Austurlandskjördæmi, Sigurður Blöndal skógarvörður, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Gils Guðmundsson,

forseti Nd.

Sigurður Blöndal hefur áður setið á þingi á þessu kjörtímabili og kjörbréf hans verið samþykkt. Býð ég hann velkominn til starfa.