28.11.1972
Sameinað þing: 21. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 899 í B-deild Alþingistíðinda. (600)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (EystJ):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 27. nóv. 1972. Ellert B. Schram, 9. landsk. þm., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda 3 opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður landsk. þm. Sjálfstfl., Halldór Blöndal kennari, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Gils Guðmundsson, forseti Nd.“ Verður að fara fram skoðun á kjörbréfinu samkv. þeirri ósk, sem lesin hefur verið, og vil ég biðja hv. kjörbréfanefnd að skoða kjörbréfið og veiti til þess 5 mínútna fundarhlé. — [Fundarhlé.]