19.10.1972
Sameinað þing: 4. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 115 í B-deild Alþingistíðinda. (66)
Fyrirspurnir
Forseti (EystJ):
Þessi fundur í sameinuðu Alþingi er sá fyrsti, sem haldinn er samkv. þingskapabreytingunum nýju til þess að fjalla um fsp. einvörðungu. í upphafi fundarins þykir mér þess vegna hlýða að minna á, að ákvæðum um ræðutíma hefur verið breytt. Fyrirspyrjendum er að vísu ætlaður 5 mínútna ræðutími tvisvar eins og fyrr, en ráðh. eru nú ætlaðar 10 mínútur til þess að svara, en áður var ræðutími ráðh. ekki takmarkaður. Þá er tveggja mínútna ræðutími ákveðinn nú öðrum en þeim, sem spyr, og ráðh. þeim, sem spurður er. Af þessu tilefni þykir mér rétt að beina því til hv. þm., að þeir virði sem bezt má verða það ákvæði þingskapanna, sem segir, að fsp. skuli vera um afmörkuð atriði eða mál og sé við það miðað, að hægt sé að svara henni í stuttu máli. Ég veit, að hv. alþm. skilja, að fsp. koma því aðeins að notum, að þessum vinnureglum sé fylgt. Mál þetta hafa forsetar rætt við formenn þingflokkanna og þeir verið beðnir að draga athygli að þessu atriði í flokkum sínum, og þarf því ekki að fjölyrða um þetta frekar hér, þar sem þeir tóku því mjög vinsamlega. Ég vonast eftir góðri samvinnu allra um, að spurningatíminn geti komið að góðum notum og meðferð fsp. haldizt innan þeirra marka, sem nú hafa verið sett með nýju þingsköpunum. Einnig vil ég benda hv. alþm. á ákvæði nýju þingskapanna um fsp., sem svara mætti skriflega.