05.12.1972
Sameinað þing: 25. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1027 í B-deild Alþingistíðinda. (734)
285. mál, tryggingamál sjómanna
Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):
Herra forseti. Það verður að taka það fram, að þessi fsp. kemur ekki til rétts ráðh., það er alveg augljóst. Undir mitt rn. falla ekki tryggingamál sjómanna eða aðrar persónutryggingar, svo að ég hef í rauninni ekkert um þau mál að segja og tek ekki að mér að svara þessari spurningu þannig, en vil aðeins segja það í leiðinni, að það mátti til sanns vegar færa, að fyrri fsp. tilheyrði ekki mér heldur, en svo vill til, að ég hef með að gera stjórnskipulega séð vátryggingasjóð fiskiskipa, og ég svaraði fsp. að því leyti til. sem málið snerti þann sjóð, enda þóttist ég vita, að fyrirspyrjandi ætti fyrst og fremst við það vandamál, sem er honum bundið, en ekki kannske tryggingakerfið sem slíkt almennt séð. En sem sagt, þessi mál, sem er spurt um í þessari fsp., flokkast ekki undir mitt rn., og ég get því ekki gefið nein bein svör um það, hvaða ráðagerðir eru uppi um að einfalda þessar persónutryggingar, sem hér er um að ræða.