15.12.1972
Sameinað þing: 31. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1271 í B-deild Alþingistíðinda. (909)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (EystJ):
Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:
„Reykjavík, 14. des. 1972.
Björn Pálsson, 3. þm. Norðurl. v., hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég vegna anna heima fyrir mun ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að vegna forfalla 1. og 2. varamanns Framsfl. í Norðurl. v. taki 3. varamaður flokksins, Sigurður J. Líndal bóndi, sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður, herra forseti., hér með tilkynnt. Gils Guðmundsson,
forseti Nd.“
Sigurður J. Líndal hefur áður setið á þingi á þessu kjörtímabili, og hefur kjörbréfið verið samþykkt. Býð ég hann velkominn til starfa.