24.10.1972
Sameinað þing: 6. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 232 í B-deild Alþingistíðinda. (98)

26. mál, áætlun um hafrannsóknir o.fl.

Fyrirspyrjandi (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Á þingi 1970, 91. löggjafarþinginu, flutti ég þáltill. um þessi efni og gerði m.a. svofellda grein fyrir málinu:

„Okkur er lífsnauðsyn að vita, hvernig ásatt er um fiskstofnana og annað líf í sjónum, hvað má veiða, hvað þarf að vernda, og alltaf er að koma betur og betur í ljós, að nýtízku fiskiskipafloti þarf að styðjast við margs konar þjónustu, svo sem fiskileit, veiðitilraunir, veiðarfæratilraunir o.s.frv., ef fullur árangur á að nást. Aðkallandi verkefni í þessum greinum eru óþrjótandi.

Flm. er þeirrar skoðunar, að nú sé þörf úttektar á því, hvernig við erum á vegi stödd í þessum efnum og hvers við þörfnumst, og leggur því til, að sérfræðingum verði nú falið að gera 5 ára áætlun um nauðsynleg verkefni á þessu sviði, og verði sú áætlun gerð í nánu samstarfi við samtök sjómanna og útvegsmanna. Væri sú áætlunargerð hliðstæð því, sem nú hefur verið gert varðandi rannsóknir á vatnsaflinu. Það er sannfæring flm., að viðhorf allt sé svo gerbreytt orðið varðandi fiskstofnana og annað, sem í sjónum býr, fiskveiðarnar og möguleikana til þess að fá vitneskju um hafið sjálft og hafsbotninn, að skoða verði þessi rannsóknarmál frá nýjum sjónarhól og í algerlega nýju ljósi.“

Þetta var úr grg. fyrir till., tvær mgr. Síðan fór þessi till. til hv. allshn., og hún lagði til, að Alþ. samþykkti hana með þeim hætti, sem varð, en hún var samþ. svo hljóðandi:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta gera þriggja ára áætlun um haf- og fiskirannsóknir við Ísland, enn fremur um fiskileit, veiðitilraunir og aðra slíka þjónustu við fiskveiðiflotann. Áætlunin sé gerð af Hafrannsóknastofnuninni í nánu samstarfi við samtök sjómanna og útvegsmanna. Áætlunina skal leggja fyrir Alþ. svo fljótt sem verða má.“

Nú hef ég leyft mér að bera fram fsp. í tveimur liðum um það, hvernig þetta mál horfi. Mér leikur forvitni á að vita, hvað í þessu hefur verið gert á þeim tíma, sem liðinn er síðan áætlunin var samþykkt, og ég veit, að það mun einnig verða vel þegið af öðrum að fá fréttir af málinu.