13.12.1973
Neðri deild: 40. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1415 í B-deild Alþingistíðinda. (1205)
102. mál, veiðar með botnvörðu, flotvörpu og dragnót í fiskveiðilandhelgi
Pétur Sigurðsson:
Herra forseti. Ég skal vera mjög stuttorður. Það er ákaflega eftirtektarvert, þegar hv. þm. talar um, að ég hafi hrökklast úr hversdagslegu jafnvægi. Ég gerði það m. a. vegna þess, hvernig þessi hv. þm. tók til orða í sinni fyrri ræðu í dag. Hann var ekki þá með sína persónulegu skoðun, hann var að fara með annarra manna skoðanir. Hann hefur viðurkennt, að á þessum málum hefur hann ekkert vit, hann hefur það allt frá öðrum. En þá var hann að tala um allt annað en sína heimabyggð og miðin við hana, hann var að tala um Faxaflóann. Hvaðan hafði hann sitt vit þar? Hver hrökklaðist þá úr jafnvægi, þegar hann stóð hér frammi fyrir okkur og sagði: Við verðum að hlíta þeim mönnum, sem best hafa þar vit á. — Og hvernig var það vit fengið, þegar Alþ. greiddi atkv. á sínum tíma eins og gert var? Og hvað er verið að gera núna? Það er ekki verið að gera annað en gefa öllum sama rétt. Hvað um það, þó að þessi hv. þm. tali um mig sem sjálfskipaðan talsmann íslenskra sjómanna. Ég hef ekki verið sjálfskipaðri talsmaður íslenskra sjómanna en það, að ég er álíka mikið sjálfskipaður í það og hann er sýslumaður á Snæfellsnesi. En auk þess hefur þessi ágæti sýslumaður og þm. stundum fengið mig með sér til þess að flytja till., sem varða heill og velferð íslenskra sjómanna, þó svo að hann hafi svo aftur á seinni stigum hlaupið frá þeim.