14.12.1973
Neðri deild: 41. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1443 í B-deild Alþingistíðinda. (1249)
Umræður utan dagskrár
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Ég hef kvatt mér hljóðs nú utan dagskrár til þess sérstaklega að vekja athygli á því stóralvarlega ástandi, sem nú ríkir í Austur-Skaftafellssýslu, sér í lagi á Höfn í Hornafirði. Allskyndilega, enda þótt við vissum, að þar væri engin orka afgangs, varð það, að orka þvarr með þeim hætti, að nú verður að telja, að ríki þarna hreint neyðarástand og miklu alvarlegra en við fram á síðustu klukkutíma gátum gert okkur í hugarlund. Flutt hefur verið úr öllum Viðlagasjóðsbúsunum, 20 að tölu, t. d. Það fólk hefur verið flutt á hótel staðarins, og rætt hefur verið um það, að jafnvel mundi neyðst til að flytja þetta fólk e. t. v. hingað suður. Það verður ekki rakið neitt hér sérstaklega, hvernig ástandið er að öðru leyti. Það frýs í leiðslum í hítaveitum húsa, og útflutningsbirgðir liggja undir stórskemmdum að sjálfsögðu, og þannig er þetta á öllum sviðum. Ég vil nú beina þeim orðum mínum til hæstv. orkumálaráðh., hvort ekki hafi verið gripið til allra þeirra ráða, sem í mannlegu valdi standa, til þess að bæta úr þessu neyðarástandi og með hvaða hætti yfirleitt staðið er að því, því að einskis má láta ófreistað til þess, að þarna verði gripið til réttra ráða og á þeim tíma, sem dugir.