14.12.1973
Neðri deild: 41. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1445 í B-deild Alþingistíðinda. (1255)

Umræður utan dagskrár

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Mér er miklu meira í mun, að brugðist verði af öllu afli við til þess að bjarga Austur-Skaftfellingum úr þeim ógöngum, sem þeir eru í, en að ég láti mér til hugar koma að fara að drepa því máli á dreif með því að fara að hefja hér almennar umr. um orkumál. Ég vil þakka hæstv. orkumálaráðh. og hæstv. forsrh. einnig fyrir þeirra svör. Ég þykist mega marka af þeim, ekki síst orðum hæstv. forsrh., að hér er vel og drengilega á málum haldið. Ég vildi aðeins bæta því við, þar sem rætt var um Skipaútgerð ríkisins og þá möguleika, sem hún hefur á því að anna flutningi gastúrbínu frá Seyðisfirði, hvort ekki væri athugandi einnig að rannsaka, hvort skip annarra skipafélaga kynnu að vera nærhendis, þannig að það mætti þá kalla þau til þeirra hluta, því að eins og ég sagði, má einskis láta ófreistað til að bjarga því, sem bjargað verður, í því hallærisástandi, sem þarna ríkir.