26.02.1974
Sameinað þing: 60. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2367 í B-deild Alþingistíðinda. (2157)
Umræður utan dagskrár
Svava Jakobsdóttir:
Herra forseti. Það er athyglisvert, að þeim hv. þm. Sjálfstfl., sem hér hafa talað, hefur orðið tíðræddara um hinn glæsilega árangur undirskriftasöfnunarinnar, eins og þeir orða það, en meðferð undirskriftanna, sem er það atriði, sem hér er raunverulega til umr.
Það er rétt, sem kom fram í ræðum hv. þm., Ragnars Arnalds, og hæstv. forsrh., að við eigum ekki lög til þess að vernda einstaklinga gegn slíku. En því verður ekki með nokkrum rétti haldið fram, að hér hafi verið skákað í því skjólinu, að mönnum hafi verið ókunnugt um afleiðingar slíkrar meðferðar sem þessarar. Forsvarsmenn þessara undirskrifta skipa margir hverjir æðstu embætti við Háskóla Íslands. Eigum við að ætla þeim, að þeim sé algerlega ókunnugt um, hvernig megi nota upplýsingar, sem koma út úr tölvu og unnar eru eins og hér hefur verið gert? Leyndin, sem hvílt hefur yfir þessari tölvunotkun allt fram til hins síðasta, bendir til hins gagnstæða. Hún bendir eindregið til þess, að þessum mönnum hafi sjálfum verið ljóst, að þeir voru að fremja ámælisverðan verknað.
Ég vil í þessu sambandi vekja athygli hv. þm. á því, að þessir menn eiga greiðari aðgang að tölvu háskólans en flestir aðrir. Og mér þykir því rétt að spyrja að því í þessum umr. og vænti þess, að talsmenn þessara samtaka, sem hér eru inni, upplýsi hvaða tölva hefur verið notuð, hvort tölva háskólans hafi verið notuð, og sé svo, væri fróðlegt að vita, hvort það sé að vilja og skapi háskólayfirvalda, að tölva háskólans sé notuð í því skyni að búa til pólitíska skrá yfir íbúa landsins.
Í öðru lagi væri fróðlegt að vita, hvaðan greiðsla hefði komið og hvað hún hefði verið mikil. Það kom fram hér áðan, að kostnaður við tölvuvinnslu muni ekki vera minni en 400 þús., og þegar þetta bætist ofan á allan annan kostnað við þessa undirskriftasöfnun, skrifstofuhald á fleiri en einum stað á landinu með húsaleigukostnaði, símakostnaði að ótöldum sjónvarpsauglýsingum, þá gefur auga leið, að þessi upphæð er miklu hærri en sú, sem komið hefur fram í blöðum. Mig minnir, að hafi verið nefndar 200 þús. kr., sem hafi safnast í frjálsum samskotum.