05.03.1974
Sameinað þing: 64. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2481 í B-deild Alþingistíðinda. (2297)
205. mál, tekjustofnar sýslufélaga
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Í sambandi við þetta mál, tekjustofna sýslufélaga, vil ég vekja athygli á því, að á síðari árum hefur orðið vart við vissa þróun í sveitarstjórnarmálum á Íslandi. Þessi þróun hefur gengið í þá átt, að sveitarstjórnarmenn í landinu hafa talið ástæðu til að gera veigamiklar breytingar á sveitarstjórnarlögum. Það er farið út á þá braut, að stofna landshlutasamtök sveitarfélaga, sem nú eru orðin veruleiki í öllum landshlutum, og þessi landshlutasamtök hafa þegar haslað sér völl í lögum á vissum sviðum. Og það, sem nú er að gerast, er, að yfir stendur endurskoðun sveitarstjórnarlaga, og þá kemur einnig inn í þá endurskoðun þátturinn um sýslufélögin, sem er hefðbundinn þáttur í sveitarstjórnarlögum á Íslandi. Ég tel ástæðu til að minna á þetta hér, þegar talað er um að taka þennan þátt einn út úr í sambandi við nýja tekjustofna. Þegar tekjustofnar sveitarfélaga voru síðast til meðferðar, var einmitt þetta sjónarmið efst á baugi, að það yrði að taka sveitarstjórnarlögin til endurskoðunar í sambandi við tilkomu landshlutasamtaka sveitarfélaga, því að það fer ekki fram hjá neinum, sem um þessi mál fjalla, að verulega fara saman þau verkefni, sem landshlutasamtökum sveitarfélaga er ætlað, og verkefni sýslufélaga, eins og þau eru tiltekin í lögum. Ég vil þess vegna benda á það, að þrátt fyrir þessa till., sem ég er ekki að tala gegn, tel ég mjög tímabært, að niðurstaða fáist um skipan þessara mála í framtíðinni, því að ekki er hægt að hugsa sér, að þarna verði um tvenn samtök að ræða, sem geta e.t.v. orðið árekstrar um. — Ég vil aðeins vekja athygli á þessu atriði.