20.03.1974
Neðri deild: 87. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3013 í B-deild Alþingistíðinda. (2688)
259. mál, skattkerfisbreyting
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Enda þótt ég telji, að í þessu frv. sé að finna till. um skattkerfisbreytingu, sem ég tel til hóta og fylgi alfarið og hef af þeirri ástæðu einvörðungu löngun til þess að greiða ekki atkv. gegn lokaafgreiðslu málsins, þá ber á hitt að líta, að mestallur annar málatilbúnaður hæstv. ríkisstj. í þessu sambandi er með slíkum endemum að ég neyðist til að segja nei.