13.11.1973
Sameinað þing: 19. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 594 í B-deild Alþingistíðinda. (462)

353. mál, bygging Seðlabankans

Fyrirspyrjandi (Pétur Sigurðsson):

Herra forseti Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir mjög greinargóðar upplýsingar. Það er athyglisvert, sem kemur fram í svari hans og svari hæstv. ráðh. við minni fyrri fsp., að kostnaður pr. rúmmetra við heimili drykkjusjúkra á Vífilsstöðum er kr. 10130 á rúmmetra, en við Seðlabankann 10900 kr. á rúmmetra.