13.11.1973
Sameinað þing: 19. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 599 í B-deild Alþingistíðinda. (473)
57. mál, fiskileit úti fyrir Austfjörðum
Fyrirspyrjandi (Sverrir Hermannsson) :
Herra forseti. Á þskj. 61 hef ég leyft mér að beina þeirri fsp. til hæstv. sjútvrh., hvernig líði framkvæmd á þál. um fiskileit fyrir Austfjörðum, sem samþ. var á Alþ. hinn 5. mars 1971. Hún hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að láta hið fyrsta fram fara ítarlega fiskileit úti fyrir Austfjörðum, og verði sérstök áhersla lögð á leit að rækju, humar og skelfiski. Fiskileit þessi verði gerð í samráði við Hafrannsóknastofnunina og samtök sjómanna og útvegsmanna á Austurlandi.“
Nú þarf ekki að setja á tölur um nauðsyn þess, að aukin sé fiskileit og rannsóknir á göngu fiskstofna. Ég hygg, að það sé jafnvel hið mesta mál, sem okkar bíður, að auka það sem mest við megum. Og sannleikurinn er sá, að okkur vantar enn allan grundvöll til þess að taka ákvarðanir um fiskifriðun, meðan á skortir allar rannsóknir á fiskgöngum og fiskstofnum, eins og raun her vitni nú. Menn hafa uppi stórar tölur um fiskvernd, um friðun fiskimiða, án þess að hafa nokkurn grundvöll til að byggja á. Við erum svo skammt á veg komin í þessum sökum, að segja má, að ákvörðun í þessu efni sé ekki undirbyggð með þeim hætti, sem vera skyldi. Lögð er fram hér í þingi till. til þál. um nýtingu landhelginnar til fiskveiða, án þess að þar liggi til grundvallar nokkur fræðileg athugun eða grundvöllur, hvernig að því máli skuli yfirleitt staðið. En það hefur komið í ljós á undanförnum árum, að möguleikar okkar eru ótrúlegir í sambandi við nýtingu sjávarafla. Ný fiskimið hafa fundist, skelfiskmið í Breiðafirði og við Djúp vestur, nýr atvinnuvegur, sem hefur veitt fólki atvinnu og gefið hinn besta arð. Þess vegna ber að leggja áherslu á rannsóknir í þessum efnum. Og ég hygg, að fyrir Austurlandi hafi ekki verið lögð sú áhersla á rannsóknir sem vera skyldi, og fyrir því hef ég beint þessari fsp. til hæstv. sjútvrh. Vænti ég, að hann muni geta upplýst, með hvaða hætti staðið hefur verið að rannsóknum í þessu efni.