20.11.1973
Sameinað þing: 21. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 746 í B-deild Alþingistíðinda. (606)

88. mál, ferðir hermanna af Keflavíkurflugvelli

Svava Jakobsdóttir:

Herra forseti. Mér þótti svar hæstv. utanrrh, ekki alveg fullnægjandi. Ég geri ráð fyrir því, að þegar hann talar um ókvænta hermenn eða kvænta hermenn, eigi hann við það, að eiginkonan sé hér á landi. Nú vitum við, að margir hermenn hér eru kvæntir án þess að hafa eiginkonur sínar með sér hér á landi. Hvaða reglur gilda um þessa menn? Ég spyr einkum vegna þess, að í sumar átti ég leið upp á Vatnajökul, komst m. a. á Bárðarbungu og að Grímsvötnum. Með í þessari ferð Ferðafélags Íslands voru hermenn af Vellinum. Einn þeirra var með konu sína með sér, annar var kvæntur, en án konu sinnar. Þessi ferð tók nokkra daga. Ég tek þetta fram vegna þess, að ég fæ ekki séð, að ferðalag þessa manns falli undir þær skilgreiningar, sem hæstv. utanrrh. gaf okkar hér áðan.