28.11.1973
Neðri deild: 30. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 932 í B-deild Alþingistíðinda. (821)
11. mál, bann gegn veiðum með botnvörpu og flotvörpu
Pétur Sigurðsson:
Herra forseti. Mér þykir rétt, um leið og þessu frv. verður vísað til hv. sjútvn., að sú ábending komi fram, að hin efnislega hlið þessa frv. eða forsenda hennar er auðvitað algerlega farin veg allrar veraldar eftir samninga þá, sem hæstv. ríkisstj. hefur gert við hennar hátign, vegna þess að það frv., sem um er að ræða og á að taka við af gildandi l., er miðað við skiptingu 50 mílna fiskveiðilögsögunnar fyrir okkur Íslendinga. Við vitum, að það er aðeins lítill hluti þeirrar lögsögu, sem við höfum til ráðstöfunar fyrir okkur og okkar flota á næstu tveimur árum, og því tel ég, að það sé mjög varasamt að samþ. þetta frv. með þessari tímaákvörðun. Væri kannske réttara að láta þessi brbl. gilda næstu tvö ár eða jafnlengi og samningurinn við hennar hátign stendur.