04.12.1973
Sameinað þing: 30. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1054 í B-deild Alþingistíðinda. (938)

68. mál, farþegaskip milli Íslands, Færeyja, Noregs, Svíþjóðar og Danmerkur

Svava Jakobsdóttir:

Herra forseti. Ég held, að það sé nauðsynlegt, að ég geri örstutta aths. út af ummælum hv. síðasta ræðumanns um orðalag á brtt. okkar, þar sem við leggjum til að skipið „uppfylli nútímakröfur“. Ég verð að játa, að ég bjóst ekki við, að það mundi hlaða svona miklu utan á sig eins og varð í ræðu hv. þm., sem síðast talaði, þar sem hann var búinn að gera þetta að lúxusskipi fyrir burgeisa. Það, sem við eigum einfaldlega við, er, að það sé hraðskreitt, það geti flutt bifreiðar, það geti uppfyllt þær kröfur, sem geri að verkum, að það verði í rauninni eftirsóknarvert fyrir fólk að nota það í sumarleyfisferðir. Ég hygg, að það sé engin ástæða til þess, að þetta eina orð valdi neinum ágreiningi á milli okkar.