03.03.1975
Sameinað þing: 44. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2053 í B-deild Alþingistíðinda. (1633)
Rannsókn kjörbréfs
Forseti (Ásgeir Bjarnason) :
Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:
„Reykjavík, 3. mars 1975.
Ritari þingflokks Sjálfstfl. hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Samkvæmt beiðni Eyjólfs K. Jónssonar, 4. þm. Norðurl. v., sem nú er utanbæjar vegna sérstakra anna, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþ. að óska þess að 1. varam. hans, frú Sigríður Guðvarðardóttir, taki á meðan sæti hans á Alþingi “
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.
Ragnhildur Helgadóttir, forseti Nd.
Til forseta Sþ.“
Það þarf að rannsaka kjörbréf frú Sigríðar Guðvarðardóttur og bið ég kjörbréfanefnd að gera það nú þegar.