20.03.1975
Sameinað þing: 55. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2626 í B-deild Alþingistíðinda. (2019)
Almennar stjórnmálaumræður
Forseti (Ásgeir Bjarnason) :
Umr. fer þannig fram, að hver þingflokkur fær til umráða hálfa klukkustund. Umferðir verða tvær, 20 mínútur í þeirri fyrri, 10 mínútur í þeirri síðari, eða 15 mínútur í hvorri ef flokkar kjósa heldur þann hátt.
Röð flokkanna verður þessi: Alþb., Sjálfstfl., Alþfl., Framsfl. og SF.
Ræðumenn flokkanna verða: Fyrir Alþb. í fyrri umferð Ragnar Arnalds, 5. þm. Norðurl. v., og í síðari umferð Lúðvík Jósepsson, 2. þm. Austurl. Fyrir Sjálfstfl. í fyrri umferð Geir Hallgrímsson forsrh. og í síðari umferð Matthías Á Mathiesen fjmrh. Fyrir Alþfl. í fyrri umferð Benedikt Gröndal, 2. landsk. þm., og í síðari umferð Gylfi Þ. Gíslason, 9. þm. Reykv. Fyrir Framsfl. í fyrri umferð Ólafur Jóhannesson dómsmrh. og í síðari umferð Halldór E. Sigurðsson landbrh. Fyrir SF í fyrri umferð Magnús T. Ólafsson, 3. landsk. þm., og í síðari umferð Karvel Pálmason, 5. þm. Vestf.
Hefst nú umr. og tekur fyrstur til máls hv. 5. þm. Norðurl. v., Ragnar Arnalds, og talar af hálfu Alþb.