03.04.1975
Sameinað þing: 56. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2702 í B-deild Alþingistíðinda. (2039)
Rannsókn kjörbréfa
Forseti (Ásgeir Bjarnason):
Bragi Sigurjónsson hefur áður setið á þingi og býð ég hann velkominn til þings.
Kristján Friðriksson hefur ekki áður setið á þingi og ber að undirrita eiðstaf.
[Hinn nýi þm., Kristján Friðriksson, undirritaði drengskaparheit um að halda stjórnarskrá landsins.]
Kristján Friðriksson hefur undirritað eiðstaf og býð ég hann velkominn til starfa á Alþingi.