02.05.1975
Efri deild: 77. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3485 í B-deild Alþingistíðinda. (2606)

225. mál, Hússtjórnarkennaraskóli Íslands

Frsm. (Axel Jónsson):

Herra forseti. Aðdragandinn að því lagafrv., sem hér liggur fyrir og lá raunar fyrir Alþ. s. l. vetur, er að hinn 29. nóv. 1971 skipaði menntmrn. n. til að endurskoða gildandi lög um húsmæðrafræðslu og lög um Húsmæðrakennaraskóla Íslands. Í n. voru skipuð: Steinunn Ingimundardóttir skólastjóri, samkv. tilnefningu skólastjóra húsmæðraskólanna og var hún jafnframt skipuð formaður n., Björn Halldórsson skrifstofustjóri, samkv. tilnefningu Sambands ísl. sveitarfélaga, Halldóra Eggertsdóttir formaður Kennarafélagsins Hússtjórnar, samkv. tilnefningu félagsins, Sigríður Haraldsdóttir kennari, samkv. tilnefningu Kvenfélagasambands Íslands, og Vigdís Jónsdóttir skólastjóri Húsmæðrakennaraskóla Íslands, skipuð án tilnefningar.

N. sendi rn. með bréfi 1973 tvö lagafrv. nm Hússtjórnarkennaraskóla Íslands og um heimilisfræðaskóla. Frv. þessu voru bæði lögð fyrir Alþ. 1973 í þinglok til kynningar og síðan á ný 1874, þá með nokkrum breyt., sem rn. hafði gert. Á síðasta þingi vannst ekki tími til að afgr. þetta mál út úr þessari hv. d., en menntmn. þessarar hv. d. fjallaði þá um málið og komst að sameiginlegri niðurstöðu um nokkrar breyt. á frv. Núv. menntmn. þessarar hv. d., sem skilar áliti á þskj. 547, mælir með samþykkt frv. með þeim breyt. er n. flytur á sérstöku þskj., en fjarverandi við afgreiðslu málsins var Steingrímur Hermannsson.

Núv. menntmn. tekur upp þær brtt, sem hv. menntmn. þessarar d. í fyrra lagði til, að því frátöldu að óþarft var að taka upp brtt. varðandi 18. gr., því að till. n. er nú í frv. og er raunar í beinum tengslum við samþykkt grunnskólalaganna á s. l. vetri.

Meginnýmælið í þessu frv. er það, að af Húsmæðrakennaraskóla Íslands skuli taka við stofnun sem nefnist Hússtjórnarkennaraskóli Íslands og skuli hann skiptast í tvær deildir, önnur annist menntun hússtjórnarkennara, en hin menntun matráðsmanna, eins og segir í 1. gr. frv.

Ég vil láta þess getið hér, að þar sem vikið er að því í 2. gr. frv. að kennaradeildin búi nemendur undir kennslu í heimilisfræðum, áskil ég mér rétt við 3. umr. málsins, ef svo vill verkast, að flytja breyt. um að þar komi hússtjórn í stað heimilisfræða vegna þess að menntmn. þessarar hv. d. hefur nú nýverið ákveðið, en ekki gengið frá afgreiðslu hins frv. sem ég vék að áðan og heitir frv. til l. um kennslu í heimilisfræðum, og leggur n. til, að skólarnir heiti hússtjórnarskólar. En þetta verður látið bíða 3. umr.

Auk þess, sem hér hefur verið talið, eru ýmsar greinar í frv. sameiginlegar báðum þessum aðaldeildum sem vikið er að í 2. gr. frv.

Í 3. gr. frv. er kveðið á um að lokapróf frá Hússtjórnarkennaraskóla Íslands skuli veita réttindi til þeirra starfa, sem talin eru í 2. gr., samkv. nánari ákvörðun í reglugerð.

Í 4. gr. er ákveðið að Hússtjórnarkennaraskóli Íslands skuli vera þriggja ára skóli og námstími 110–120 vikur. Skiptingu kennslunnar í námstíma skal ákveða í reglugerð.

Við 6. gr. frv. er fyrri brtt. n. á þskj. 548 um að gr. orðist eins og þar segir, en gr. kveður á um inntökuskilyrði í skólann. Höfuðmarkmiðin eru þau, að inntökuskilyrðin séu stúdentspróf ásamt 20 vikna hússtjórnarnámskeiði eða próf frá hússtjórnarskóla að viðbættu prófi úr tveggja ára framhaldsdeildum gagnfræðaskóla. Hér er um örlitla rýmkun að ræða frá því sem er í frv.

Í 6. gr. er tekið fram, hvað kenna skuli í báðum deildum skólans.

Í 7. og 8. gr. frv. eru ákvæði um að nemendum Hússtjórnarkennaraskólans skuli gefinn kostur á kennsluæfingum og verklegri kennslu í tilteknum stofnunum að fengnum tillögum og í samráði við skólastjóra Hússtjórnarkennaraskólans.

Þar er og kveðið d um, að um framkvæmdina fari eftir ákvörðun reglugerðar.

10. gr. kveður á um að menntmrn. fari með yfirstjórn skólans. Það skipar m. a. 6 manna skólanefnd o. s. frv., eins og þar er fram tekið.

14. gr. kveður í fyrsta lagi á um, hverja megi setja skólastjóra og kennara við skólann, en í 14. gr. segir svo, með leyfi forseta:

„Þá eina má setja skólastjóra og kennara við Hússtjórnarkennaraskóla Íslands sem lokið hafa fullnaðarprófi frá Húsmæðrakennaraskóla Íslands, Hússtjórnarkennaraskóla Íslands eða hafa kennarapróf frá hliðstæðum kennaraskólum erlendum og hafa stundað framhaldsnám í hússtjórnarfræðum, uppeldisfræðum eða „diet“fræðum.“

Á þskj. 548 er 2. brtt. n. um að 2. málsgr. gr. orðist eins og þar segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Þeir kennarar, er lokið hafa kandídatsprófi frá Norræna búsýsluskólanum eða kandídatsprófi frá annarri hliðstæðri stofnun í einhverri aðalkennslugrein skólans, að viðbættri menntun í uppeldisfræðum, sitja að öðru jöfnu fyrir um stöður.“

Hér er einnig um rýmkun að ræða frá þeim ákvæðum sem í frv. eru.

Eins og ég vék að er 18. gr. samhljóða því sem hv. menntmn. lagði til í till. sínum á s. l. vetri, varðandi orlof, hvernig þar skuli með fara og hvernig ákveða skuli greiðslur o. s. frv., og er þar stuðst við ákvæði grunnskólalaganna. Þar er kveðið á um að þau ákvæði taki einnig til skólastjóranna.

Herra forseti. Ég hygg, að gr. frv. skýri sig að öðru leyti sjálfar, og sé ekki ástæðu til að fara um þær fleiri orðum og legg til að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 3. umr.