09.05.1975
Efri deild: 80. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3663 í B-deild Alþingistíðinda. (2777)

109. mál, sjóður til aðstoðar við drykkjusjúka

Steinþór Gestsson:

Herra forseti. Ég tel mig knúinn til að segja örfá orð í sambandi við þetta frv. sem hér er til 2. umr. vegna þess að ég á sæti í heilbr.- og trn. sem þetta mál hafði til meðferðar og ég skrifaði undir það nál., sem hér er, með fyrirvara og ég vil skýra minn fyrirvara fyrir hv. þdm.

Frsm. n. hefur hér bent á mikilvægi þess máls sem hér um ræðir. Ég vil á engan hátt draga úr því og tek undir það, sem hann sagði um það efni, að þetta er vandamál sem krefst úrlausnar. En í umr. um málið í n. benti ég á það í fyrsta lagi að sú fjáröflun, sem hér er gert ráð fyrir, er býsna stór og viðamikil, væntanlega um 200 millj. kr. á ári, og er ekki nema gott til þess að vita að menn vilja vera riflegir til þess að standa að úrbótum í þessum efnum. En ég taldi rétt að ef það ætti að fara að gera slíkt stórátak sem hér er gert ráð fyrir, þá ætti um leið að sameina þá krafta sem vinna að sama málefni í landinu, það ætti að taka til endurskoðunar um leið lagaákvæði um Gæsluvistarsjóð og fella þetta í eina heild svo að af því yrði enn ákveðnara og stæltara átak.

Fyrirvari minn hefur verið þessi. Þegar ekki gat orðið samkomulag um hann lagði ég til að frv. yrði vísað til ríkisstj. til athugunar svo að samræming gæti átt sér stað. Ekki var fallist á það af mínum meðnm. En vegna þess að ég viðurkenni mikilvægi málsins vildi ég ekki standa í vegi fyrir því að reynt yrði á vilja annarra þdm. um þetta efni og vildi ekki bregða fæti fyrir það og mun ekki gera það í atkvgr. að öðru leyti en því að ég geri ráð fyrir því að ég sitji hjá við atkvgr.