12.05.1975
Efri deild: 86. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3873 í B-deild Alþingistíðinda. (3023)

132. mál, dýralæknar

Frsm. (Steinþór Gestsson):

Herra forseti. Frv. þetta, sem hér er til umr. og er til l. um breyt. á l. um dýralækna, er einnig komið frá Nd. og var afgr. frá þeirri hv. d. shlj. Það felur í sér skiptingu dýralæknisembættis á Austurlandi, Um þetta frv. hefur borist umsögn yfirdýralæknis og vil ég kynna hv. dm. það sem hann hefur um málið að segja. Frv. er flutt af þremur þm. Austf., þeim Tómasi Árnasyni, Sverri Hermannssyni og Lúðvík Jósepssyni. Yfirdýralæknir segir svo um frv.:

„Hér er gert ráð fyrir að koma á fót nýju dýralæknisumdæmi, Austurlandsumdæmi syðra. Mér er kunnugt um að það hefur lengi verið ósk manna á Austurlandi að fá þangað dýralækni til viðbótar því þegar annatími er mestur síðari hluta vetrar, að vorinu og að haustinu anna tveir dýralæknar á engan hátt þeim verkefnum sem að kalla. Dýralæknir, sem hefði búsetu t.d. á Breiðdalsvík eða sunnar, gerbreytti aðstöðu fólks á þessu svæði til að ná í dýralækni til aðstoðar þegar skepnur veikjast. Eins og skipan þessara mála er nú má það teljast allt að því frágangssök. Ég Legg því mikla áherslu á að stofnað verði Austurlandsumdæmi syðra.“

Þetta er það, sem yfirdýralæknir hefur um málið að segja. Landbn. fellst algjörlega á þessa skoðun og telur eðlilegt að hér sé skipt dýralæknisumdæmi. Það mun að sjálfsögðu hafa einhvern aukinn kostnað í för með sér, en þess ber þó að gæta að dýralæknir, sem annast hefur þjónustu á þessu svæði, hefur fengið aðstoðardýralækni af og til vegna þess hve það verkefni hefur verið mikið sem hann hefur haft með höndum. Landbn. Ed. er því sammála um það að mæla með því við d. að hún samþykki þetta frv. óbreytt.