13.05.1975
Sameinað þing: 78. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4023 í B-deild Alþingistíðinda. (3255)
346. mál, utanríkismál 1975
Forseti (Ásgeir Bjarnason):
Út af því sem hv. 2. landsk. þm. sagði og beindi til mín sem forseta þegar hann sagði að Alþ. væri í upplausn og þar ríkti algjört stjórnleysi, þá er þetta mikið sagt. Það er lágmarkskrafa, sem hægt er að gera til hv. 2. landsk. þm. og ekki síst þar sem hann er flokksforingi, að hann rökstyðji ummæli þessi.