16.05.1975
Efri deild: 95. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4376 í B-deild Alþingistíðinda. (3650)

220. mál, atvinnuleysistryggingar

Axel Jónsson:

Herra forseti. Það er rétt sem fram kom hjá hv. frsm. Þetta er öflugur sjóður eignalega séð, hann hefur miklar tekjur, áætlaðar tekjur eru 873 millj. En ráðstöfunarfé stjórnar sjóðsins er ekki í takt við eignir hans eða tekjur í ár. Og ráðstöfunarfé sjóðsins er ekki nema tæpar 340 millj. Það er búið að binda að verulegu leyti 340 millj. strax til húsnæðismála, verulega upphæð vegna aðstoðar við aldraða og svo mætti lengi telja. Ég er hér með tekjuáætlun sjóðsins og gjaldaáætlun sem sýnir ráðstöfunarféð. Ég vil — til þess að stytta tímann — ekki lesa meira en þessa tvo stóru liði sem sýna og sanna, að þrátt fyrir það að þetta sé einn öflugasti sjóður landsins er hann með svo til allt sitt fé bundið í verðbréfum, og þótt hann hafi þessar árlegu tekjur er þegar af löggjafanum búið að ráðstafa þeim, þannig að það eru ekki verulegar upphæðir eftir. Og þær koma í fyrsta lagi til þess að standa undir því meginhlutverki, sem sjóðnum er ætlað, að tryggja það að greiða atvinnuleysisbætur, — við getum öll verið sammála um að það sé óskandi að þær þurfi að verða sem minnstar, — en í öðru lagi að veita lán á hina ýmsu staði til þess að auka atvinnuöryggi.