04.11.1975
Sameinað þing: 11. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 340 í B-deild Alþingistíðinda. (205)
14. mál, raforkumál á Snæfellsnesi
Fyrirspyrjandi (Benedikt Gröndal):
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir greinargóð svör sem hann hefur veitt við fyrirspurn minni. Ég verð þó að láta í ljós vonbrigði yfir því að framkvæmdir í sambandi við línuna, sem sjálf er fyrir alllöngu tilbúin, skuli hafa dregist þetta mikið, og ég vil fara fram á við hann að lögð verði á það rík áhersla að hraða þessum framkvæmdum eins og hægt er. Hér er um að ræða rafveitukerfi sem er mjög víðtækt og þjónar fjölmennum byggðum bæði til sveita og sjávar. Eins og hv. síðasti ræðumaður benti á hefur fólk á þessum stöðum treyst raforkunni og verður oft fyrir því að ýmiss konar tæki, sem eru ærið dýr nú á dögum, hafa bilað og jafnvel skemmst alvarlega vegna skyndilegs spennufalls sem verður án þess að fólk fái nokkuð um það að vita eða nokkrar viðvaranir um það. Ég tel að það hljóti að vera mjög hagkvæmt að reyna að ljúka þeim endurbótum sem búið er e. t. v. að meginstofni að vinna á því svæði sem um er að ræða.