25.01.1977
Sameinað þing: 40. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1615 í B-deild Alþingistíðinda. (1295)

252. mál, samanburður á vöruverði

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Þegar Eyjólfur Sigurðsson tók sæti hér á Alþ. í fjarveru minni um hálfs mánaðar skeið í nóvembermánuði s. l. bar hann fram eftirfarandi fyrirspurn til hæstv. viðskrh., hún hljóðar þannig, með leyfi forseta:

„Í framhaldi af könnun verðlagsstjóra á vöruverði í smásölu í London annars vegar og í Reykjavík hins vegar:

1. Í hvaða tilgangi var könnunin gerð?

2. Telur ráðh. nauðsynlegt að kanna nánar hvers vegna innkaupsverð á vörum til Íslands virðist vera svo miklu hærra en til annarra aðila?

3. Er fyrirhugaður frekari samanburður á vöruverði í viðskiptalöndum íslendinga?“

Þannig hljóðar fyrirspurnin. Þessi fyrirspurn var fram borin að gefnu tilefni, tilefni sem full ástæða var til að leiddi til fyrirspurnar hér á hinu háa Alþingi. Verðlagsstjóri, sem er mjög dugmikill embættismaður og ágætlega fær til síns starfs, mun hafa tekið upp hjá sjálfum sér, óhvattur af öðrum aðilum, að gera samanburð á smásöluverði í London og í Reykjavík á sömu vörum, vörum sem fluttar eru frá London eða frá Bretlandi til Íslands. Þegar hann kom heim úr þessum leiðangri skýrði hann svo frá í fjölmiðlum, m. a. í sjónvarpi, að að sumu leyti óskýranlegur munur væri á vöruverði ýmissa vörutegunda í þessum tveim löndum, en tók að sjálfsögðu fram að hann hefði ekki kannað málið til fyllstu hlítar. En skýrsla þessa ágæta og mjög grandvara embættismanns til þjóðarinnar í fjölmiðlum var á þann veg, að full ástæða væri til að ætla að ekki væri allt eins og það ætti að vera varðandi verðlagningu hér á Íslandi á vörum sem gerð væru innkaup á í Bretlandi.

Nú er mér fullvel ljóst sökum langra kynna af verðlagsmálum og verðlagningarmálum, hversu gífurlega miklum erfiðleikum er bundið að gera réttan og sanngjarnan samanburð á verði jafnvel sömu vöru á tveim stöðum, hvað þá í tveim löndum. En vegna þess að æðsti embættismaður ríkisvaldsins á þessu sviði, sjálfur verðlagsstjórinn, sá ástæðu til að gera könnun á málinu að eigin frumkvæði og gaf skýrslu um málið, að vísu bráðabirgðaskýrslu, sem hlaut að vekja ýmsar spurningar, þá var fyllsta ástæða til þess hjá hv. þáv. þm. Eyjólfi Sigurðssyni að bera fram fyrirspurn þá sem ég hef nú lesið og gert stuttlega grein fyrir og vænti þess að fá svör við frá hæstv. viðskrh.