25.01.1977
Sameinað þing: 40. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1617 í B-deild Alþingistíðinda. (1297)
252. mál, samanburður á vöruverði
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. viðskrh. svörin. Ég vil í framhaldi af því leggja áherslu á að því starfi, sem verðlagsstjóri hefur að mínu viti góðu heilli hafið, þ. e. að gera samanburð á verðlagi sams konar vöru hér og erlendis, verði haldið áfram og því hraðað svo mikið sem frekast eru föng á.
Í því sambandi vil ég leyfa mér að minna á, að ég hef flutt till. um það hér á hinu háa Alþ. að gerður verði samanburður á launakjörum helstu atvinnustétta hér á Íslandi annars vegar og á hinum Norðurlöndunum hins vegar. Ég get sagt það hér, eins og ég sagði áður, að mér er auðvitað ljós vandinn sem er á slíkum samanburði. Margt bendir þó til þess, eins og ég nefndi dæmi um í fyrri umr., að launamismunur sé orðinn svo stórkostlegur að það þurfi að leita alveg sérstakra skýringa á því ef hann á ekki að bera vott um að íslenskir atvinnuvegir séu miklu vanfærari um að greiða sanngjarnt kaup heldur en hliðstæðir atvinnuvegir í nálægum löndum. En ég vona að þessi till. verði samþ. og að hinum færustu mönnum verði falið að framkvæma þá athugun. En einmitt í því sambandi ber sérstaka nauðsyn til að gera þann samanburð á verðlagi hér á Íslandi og í nálægum löndum sem þessi till. fer fram á. Ég fagna jákvæðum undirtektum hæstv. ráðh. undir að til þessa samanburðar verði efnt og það sem fyrst.